Slipping through my fingers

Við Eva Lind fórum saman á Mamma Mia Sing along – þegar það var í boði í Háskólabíói

Við sátum mjög framarlega, –  og reyndar stóðum þegar sungið var.  Það var engin launung á því að við fundum okkur í hlutverki móðurinnar og dótturinnar, –  enda gifti Eva mín sig í brúðarkjól síðar sem var hannaður að fyrirmynd Mamma mia kjólsins.   Þetta lag “slipping through my fingers”  fannst okkur vera um okkur, – og í miðju “sing-along-inu” fann ég hvar hún læddi hönd sinni í mína.   Þetta skiptir mig svo ómetanlega miklu máli í dag, –  að eiga þessa fallegu minningu. –    Hún kvaddi þetta líf þann 8. janúar 2013  svo það eru komin þrjú ár næst komandi föstudag,  eða 8. janúar 2016.   þrjú ár sem hafa bæði verið fljót og lengi að líða. –  Svo margt búið að gerast.

SLIPPING THROUGH MY FINGERS